Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir og Birna Einarsdóttir, stjórnarformaður Iceland Seafood International voru með opið samtal við konur félagsins að loknum hefðbundnum dagskrárliðum aðalfundsins. Þar gáfu þær konum félagsins innsýn inn í þeirra reynsluheim og helstu málefni líðandi stundar voru rædd.
Það er vart hægt að ímynda sér betri leið til að hefja ellefta starfsárið hjá Félagi kvenna í sjávarútvegi og við þökkum þessum kraftmiklu konum fyrir heimsóknina.