Félagskonur og velunnarar KIS,
Nú er stundin runnin upp, fimmtudaginn 19.maí leggja KIS konur í skemmtilegt tveggja daga ferðalag norður.
Hópurinn samanstendur af konum frá höfuðborginni jafnt sem landsbyggðinni og eru 48 félagskonur með í fer að þessu sinni.
Framundan er fjölbreytt og þettskipuð dagskrá en þó svigrúm til að kynnast og efla tengslin.
Félagið auglýsti einnig opinn viðburð, Akkerið sem fer fram bæði á Siglufirði og Akureyri kl 18:00 báða dagana þar sem konur jafnt sem karlar eru velkomnir að koma hitta okkur, kynnstar félaginu og efla tengslin.
Nánari upplýsingar um ferðina veitir Freyja Önundardóttir, formaður KIS í síma 861 2186